Forsíða
61.059 greinar á íslensku.
Diego Maradona
Diego Maradona var argentínskur knattspyrnumaður og er talinn einn besti leikmaður sögunnar. Hann vann fjölda titla með félagsliðum sínum í Argentínu, Spáni og Ítalíu, auk þess að leiða þjóð sína til sigurs á HM 1986. Árið 2000 voru Maradona og Brasilíumaðurinn Pelé útnefndir bestu knattspyrnumenn 20. aldar af Alþjóðaknattspyrnusambandinu. Á seinni hluta ferils síns átti Maradona við að etja ýmis vandamál sem tengdust ofneyslu eiturlyfja. Hann rataði ítrekað í fréttir vegna ummæla sinna eða skrautlegra uppátækja í seinni tíð. Maradona var síðast þjálfari argentínska félagsins Gimnasia de la Plata.
Vissir þú...

- … að Ferdinand 1. Búlgaríukeisari var fyrsti þjóðhöfðinginn sem flaug um borð í flugvél?
- … að flestir fræðimenn telja að tala dýrsins, 666, í Opinberunarbók Jóhannesar, vísi til Nerós Rómarkeisara?
- … að Joseph Merrick, öðru nafni fílamaðurinn (sjá mynd), fékkst við að smíða vönduð smálíkön af byggingum úr pappa?
- … að talið er að yfir 800.000 Indverjar hafi látið lífið í hefndaraðgerðum Breta gegn uppreisninni á Indlandi árið 1857?
- … að kirkjan á Íslandi heyrði undir Erkibiskupsdæmið í Bremen frá stofnun fram til 1104 þegar erkibiskupsdæmið í Lundi var stofnað fyrir kirkjur Norðurlanda?
Fréttir

- 16. maí: Sveitarstjórnarkosningar fara fram á Íslandi. Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur flest sæti í borgarstjórn Reykjavíkur.
- 16. maí: Búlgaría vinnur Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2026 með laginu „Bangaranga“ eftir Dara (sjá mynd).
- 14. maí: Evika Siliņa, forsætisráðherra Lettlands, segir af sér vegna viðbragða stjórnarinnar við drónahernaði Úkraínumanna.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Borgarastyrjöldin í Súdan • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Íransstríðið • Stríð Ísraels og Hamas
Nýleg andlát: Tryggvi Gíslason (8. júní) • Aðalsteinn Bergdal (28. maí)
10. júní
- 2002 - Kevin Warwick stýrði fyrstu tilrauninni þar sem taugakerfi tveggja manna áttu bein samskipti með rafboðum.
- 2010 - Átök milli Kirgisa og Úsbeka í Kirgistan leiddu til dauða hundruða manna.
- 2011 - Breska tímaritið News of the World hætti útgáfu.
- 2013 - Mótmælin í Gezi-garði: Fjöldi manna lést í átökum mótmælenda og lögreglu í Tyrklandi.
- 2016 - Evrópukeppnin í knattspyrnu 2016 hófst í Frakklandi. Karlalandslið Íslands í knattspyrnu tók þátt í fyrsta sinn.
- 2017 - Heimssýningin 2017 var opnuð í Kasakstan.
- 2020 – Sænski saksóknarinn Krister Petersson benti á Stig Engström sem grunaðan vegna morðsins á Olof Palme um leið og hann lýsti rannsókninni lokið.
- 2021 - Hringmyrkvi sást frá Grænlandi, Norðurpólnum og Austurlöndum Rússlands.
Systurverkefni
|
|