TikTok
Stefna um merkjaefni


Birt: 4. ágúst 2026

Tekur gildi: 31. ágúst 2026

Nýja stefnan okkar um vörumerkt efni tekur gildi þann 31. ágúst 2026. Smelltu hér til að skoða núverandi stefnu okkar um vörumerkt efni.

Hvað er vörumerkt efni?

Vörumerkt efni („Vörumerkt efni“) er efni sem kynnir eða gefur umsögn um vörumerki þriðja aðila eða vörur þess eða þjónustu í skiptum fyrir greiðslu eða annars konar hvata.

Vörumerkt efni inniheldur efni sem fjallar um eða vísar til:

  • Vöru eða þjónustu sem þú hefur fengið að gjöf frá vörumerki (eða fyrir hönd þess);
  • Vörumerkis, vöru eða þjónustu sem þú hefur fengið greitt fyrir að birta efni um (hvort sem slík greiðsla er í formi peninga eða gjafar);
  • Vöru eða þjónustu þar sem þú færð söluþóknun (til dæmis fyrir sölu í gegnum sérstakan tengil eða kynningarkóða); eða
  • Vörumerkis sem þú átt í eða hefur átt í viðskiptasambandi við, t.d. með því að koma fram sem fulltrúi vörumerkisins.

Reglur um birtingu vörumerkts efnis:

  • Þú berð ábyrgð á því að vörumerkt efni sem þú birtir sé í samræmi við öll gildandi lög og reglur. Þótt reglunum í þessari stefnu um vörumerkt efni sé ætlað að hjálpa þér að fylgja viðeigandi lögum og reglum eru þær ekki tæmandi og þú átt að kynna þér allar aðrar viðeigandi lagalegar kröfur.
  • Það kann að vera að við uppfærum þessar reglur endrum og eins (t.d. vegna breytinga á gildandi lögum eða reglum) og í sumum tilfellum getum við þurft að beita þeim á efni sem þú hefur þegar birt (t.d. ef ný lög krefjast þess að við birtum ekki lengur ákveðnar tegundir efnis).
  • Auk þess að fylgja reglum okkar um vörumerkt efni verður þú að fylgja þjónustuskilmálum TikTok og reglum samfélagsins.
  • Að því marki sem vörumerkt efni þitt brýtur í bága við einhverjar af þessum reglum getum við fjarlægt efnið eða sett aðrar takmarkanir.

Hvað þarftu að gera þegar þú birtir vörumerkt efni?

  • Þegar þú birtir vörumerkt efni þarftu að kveikja á rofanum fyrir birtingu efnis í viðskiptalegum tilgangi. Þú gerir það í stillingunum fyrir birtingu efnis þegar þú birtir efnið. Hér eru upplýsingar um hvernig á að kveikja á rofanum. Þegar þú kveikir á rofanum og gefur þannig til kynna að efnið sé birt fyrir hönd þriðja aðila þá verður efnið þitt sjálfkrafa merkt til að sýna að það sé vörumerkt efni. Þar að auki, ef þess er krafist samkvæmt lögum, gæti efninu þínu verið bætt við safn TikTok með auglýsingaefni (hafðu í huga að í sumum tilfellum gæti TikTok þurft að tryggja að vörumerkt efni verði áfram aðgengilegt í safninu, jafnvel þótt upprunalega efninu sé eytt eða því breytt).
  • Þú verður að tryggja að varan eða þjónustan sem þú ert að kynna sé nægilega skýr, án þess að áhorfendur þurfi að opna notandasíðuna þína eða einhverja tengla. Til dæmis átt þú að auðkenna vöruna eða þjónustuna með skýrum hætti, munnlega og/eða með skjátexta.
  • Þú mátt ekki setja fram rangar eða villandi fullyrðingar um vörur eða þjónustu.
  • Þú mátt ekki birta efni sem þar sem ólöglegar vörur eða þjónusta eru kynnt.
  • Þú mátt ekki kynna vörur eða þjónustu sem tengjast neinum af bönnuðu atvinnugreinunum sem taldar eru upp hér að neðan.
  • Þú ættir líka að hafa í huga að ef þú kynnir vörur eða þjónustu sem falla undir einhverjar af kröfum fyrir tiltekna markaði, eða lúta einhverjum öðrum frekari lagalegum kröfum eða takmörkunum í tilteknum löndum eða svæðum, getum við komið í veg fyrir að hægt sé að nálgast efnið í viðkomandi löndum eða beitt öðrum takmörkunum (svo sem sérstökum aldurstakmörkunum).
  • Að auki máttu ekki:
    • nota dulda tækni eða tækni til að hafa áhrif á fólk neðan marka meðvitaðrar skynjunar;
    • grafa undan virðingu fyrir mannlegri reisn;
    • hafa með eða stuðla að hvers kyns mismunun á grundvelli kyns, kynþáttar eða þjóðernisuppruna, þjóðernis, trúar eða lífsskoðana, fötlunar, aldurs eða kynhneigðar;
    • hvetja til hegðunar sem er skaðleg heilsu eða öryggi eða skaðleg umhverfinu;
    • ýta undir eða festa í sessi neikvæða eða óheilbrigða líkamsmynd eða notfæra þér veika líkamsmynd og löngun til að samræmast tilteknum stöðlum eða viðmiðum um fegurð;
    • ýta undir óheilbrigt samband við mat eða hreyfingu;
    • valda ólögráða börnum líkamlegum, andlegum eða siðferðislegum skaða;
    • hvetja ólögráða börn til að kaupa eða leigja vöru eða þjónustu eða til að sannfæra foreldra sína eða aðra um að kaupa vörur eða þjónustu sem verið er að auglýsa; eða
    • misnota það sérstaka traust sem börn bera til foreldra, kennara eða annarra einstaklinga, eða sýna ólögráða börn í hættulegum aðstæðum.

Bannaðar atvinnugreinar og vörur

Þú mátt ekki birta vörumerkt efni sem kynnir eða gefur umsögn um vörur eða þjónustu í eftirfarandi bönnuðum atvinnugreinum.

  • 🚫 Kynlífsvörur og -þjónusta – Þ.m.t. afþreying fyrir fullorðna og tengdar vörur og þjónusta, svo sem klám, kynlífsleikföng, sleipiefni og blætisbúningar, þ.m.t. lífstykki sem eru seld sem nærföt og örþvengir. Kynferðislegar athafnir eru ekki heldur leyfðar.
  • 🚫 Dýr – Þar með talin kaup eða sala á dýrum og líkamshlutum dýra, og afurðir verndaðra dýra, dýra í útrýmingarhættu eða dýra í váflokki, þ.m.t. líffæri, horn, fílabein, bein, skinn, feldir, ull, leður eða tennur.
  • 🚫 Sígarettur, tóbak og nikótínvörur – Þ.m.t. sígarettur, vindlar, tóbak, rafrettur, sígarettuílát, shisha-tóbak, nikótínplástrar, neftóbak, veip eða veipbúnaður, jafnvel þótt hann innihaldi ekki tóbak, og aðrar tengdar vörur og þjónusta.
  • 🚫 Stefnumótaforrit og forrit fyrir myndspjall í beinni – Þ.m.t. stefnumótaþjónusta og myndspjallþjónusta í beinni sem felur í sér, gefur í skyn, sýnir eða hvetur til skipta á greiðum, framhjáhalds eða kynferðislegra kynna.
  • 🚫 Vörur og þjónusta tengd fíkniefnum – Þ.m.t. ólögleg lyf, áhöld til fíkniefnaneyslu, vímuefni og lyfseðilsskyld lyf og CBD-fæðubótarefni.
  • 🚫 Fjármálaþjónusta - Þ.m.t. pýramídasvindl, fjölþrepa markaðssetning, fjárhagstilboð sem eru of góð til að vera sönn, smálán og áætlanir um skjótfenginn gróða.
  • 🚫 Lyf, læknisþjónusta og lyfjavörur, þ.m.t.:
    • heilbrigðisstofnanir, meðferðir eða lækningatæki, þ.m.t. næringarfræðingar, netapótek og fjarlækningar;
    • samtalsmeðferð eða önnur geðheilsuráðgjöf;
    • þurrmjólk og fæðubótarefni fyrir börn yngri en tveggja ára;
    • tannhvíttunarvörur og hárvaxtarvörur;
    • snyrtistofur, fegrunaraðgerðir og snyrtivörur sem haldið er fram að hafi heilsufarslega eiginleika, þ.m.t. tannaðgerðir, húðflúrun, hárfjarlæging með leysigeisla o.s.frv.; og
  • 🚫 Pólitískar auglýsingar - Við leyfum ekki kostaðar pólitískar auglýsingar, þ.m.t. þegar höfundar fá greitt fyrir vörumerkt efni af pólitískum toga. Frekari upplýsingar er að finna í stefnu okkar um pólitískar auglýsingar.
  • 🚫 Vörur og þjónusta sem ýta undir óheiðarlega hegðun – Þ.m.t. vörur eða þjónusta sem getur brotið gegn friðhelgi einkalífs einstaklinga, stolið persónuupplýsingum annarra, brotið gegn hugverka- og öðrum eignarréttindum þriðja aðila, stolið eignum annarra eða aðstoðað við óheiðarlega hegðun, svik eða fölsun.
  • 🚫 Fagleg þjónusta – Þ.m.t. bókhaldsþjónusta, lögfræðiþjónusta og þjónusta við innflytjendur.
  • 🚫 Viðkvæmt trúarlegt efni – Þ.m.t. efni þar sem trúarlegum þáttum, menningu eða persónum er sýnd vanvirðing, hatursfullt athæfi, hatursorðræða, útbreiðsla á hatursfullri hugmyndafræði eða staðhæfingar um að trúarleg heilun, ráðgjöf eða kraftaverk séu möguleg meðhöndlun, lækning eða bót á líkamlegum, andlegum eða geðrænum kvillum.
  • 🚫 Vopn, skotfæri eða sprengiefni – Þ.m.t. vopn og tengdir hlutir, svo sem skotvopn, skotvopnahlutir, skotvopnahljóðdeyfar, litboltabyssur, byssur, hnífar/blöð/spjót sem ekki eru til matargerðar, hnífar, karate-kylfur, kylfur, sverð, piparúða, flugelda eða önnur sprengiefni og aðra hluti sem eru ætlaðir til að valda einstaklingum skaða eða til sjálfsvarnar.
  • 🚫 Þyngdartapsvörur eða -þjónusta – Þ.m.t. fæðubótarefni ætluð til þyngdartaps og þyngdarstjórnunar (þar á meðal fitubrennslutöflur, efni sem draga úr matarlyst, te og/eða sleikipinnar sem stuðla að þyngdartapi og afeitrun) og vörur og þjónusta tengd föstum.
  • 🚫 Falsaðar vörur – Efni má ekki sýna eða kynna fölsuð skjöl, svo sem fölsuð prófskírteini, vegabréf eða innflytjendapappíra, eða falsaðar eða óleyfilegar eftirlíkingar af raunverulegri vöru.
  • 🚫 Aðrar bannaðar vörur eða þjónusta – Hvers kyns önnur fyrirtæki, vörur eða þjónusta sem er mjög umdeild, ósmekkleg, ofbeldisfull eða hættuleg og teldist ósamrýmanleg TikTok eða gildandi lögum. Sem dæmi má nefna konur sem ferðast milli landa í því skyni að giftast, hættulegar efnavörur, viðskipti með líffæri og ígræðslu, þjónustu til að greina kyn barns í móðurkviði og verndaðar villtar plöntur. Þetta felur einnig í sér vörumerkt efni sem vísar til viðkvæms atburðar eða efnis (dauðsföll, náttúruhamfarir eða vinnuslys, ofbeldisfullar árásir, óeirðir o.s.frv.) og inniheldur eitthvað af eftirfarandi: persónulegar árásir, eignarnám á myllumerki, sölu á vörum eða þjónustu, pólitíska herferð, beiðni um fylgjendur eða annað óviðeigandi efni.

Takmarkaðar atvinnugreinar og vörur

Vörumerkt efni sem kynnir eða gefur umsögn um vörur eða þjónustu í eftirtöldum takmörkuðum atvinnugreinum er heimilt, en verður aðeins sýnt á markaðssvæðinu þar sem það var birt og getur verið með aldurstakmörkum. Frekari upplýsingar um aðrar atvinnugreinar og vörur er að finna í Markaðssérhæfðar kröfur.

Þú berð ábyrgð á því að vörumerkt efni sem þú birtir sé í samræmi við öll gildandi lög og reglur. Undir þetta falla, en takmarkast ekki við, allar áskildar upplýsingar og fyrirvarar sem koma til viðbótar við upplýsingagjöf um vörumerkt efni. Þótt reglunum í þessari stefnu um vörumerkt efni sé ætlað að hjálpa þér að fara að viðeigandi lögum og reglugerðum eru þær ekki tæmandi og þú ættir því að kynna þér allar aðrar viðeigandi lagalegar kröfur.

Þú getur aðeins birt vörumerkt efni til að kynna eftirfarandi atvinnugreinar og vörur ef þú hefur fengið boð um slíkt frá samþykktu vörumerki.

Skilyrði fyrir vörumerki

Öll samstarfsvörumerki þurfa að fá sérstakt leyfi frá TikTok til kynningar á eftirfarandi atvinnugreinum og vörum. Samstarfsvörumerkið verður að vera með skráðan fyrirtækisreikning og verður einnig að gangast undir hvers konar áskilin ferli til að staðfesta hæfi. Vörumerki mega aðeins eiga samstarf við efnishöfunda gegnum TikTok One kerfið.

  • Áfengi – Þ.m.t. eru áfengir drykkir (vín, bjór, sterkt áfengi o.s.frv.), áfengisklúbbar og áskriftarþjónusta, bruggtæki og viðburðir sem styrktir eru af framleiðendum áfengis. Þetta inniheldur einnig áfengislausa drykki og gosdrykki sem eru auglýstir sérstaklega sem íblöndunardrykkir með áfengi, drykkjuamboð eða -leikir og efni sem kostað er af áfengisvörumerkjum.
    • Á eftirfarandi markaðssvæðum verður slíkt vörumerkt efni með aldurstakmörkum og takmörkunum innan þess markaðssvæðis þar sem efnið var birt upphaflega. Upplýsingar um þær vörur og þjónustu sem eru leyfðar á þínu svæði og um viðbótartakmarkanir er að finna í reglum um áfengisauglýsingar.
      • Áhorfendur 18 ára og eldri í Argentínu, Ástralíu, Brasilíu, Bretlandi, Filippseyjum, Ísrael, Ítalíu, Kambódíu, Kenía, Kólumbíu, Nígeríu, Mexíkó, Singapúr, Spáni, Suður-Afríku, Taívan, Víetnam, Þýskalandi
      • Áhorfendur 21 árs og eldri í Bandaríkjunum, Japan, Kanada
      • Áhorfendur 25 ára og eldri í Indónesíu, Kóreu, Malasíu, Taílandi, Úkraínu
  • Þetta vörumerkta efni er ekki leyft á eftirfarandi markaðssvæðum:
    • Alsír, Aserbaídsjan, Austurríki, Bangladess, Barein, Belgía, Bólivía, Búlgaría, Danmörk, Dóminíska lýðveldið, Egyptaland, Eistland, Ekvador, Finnland, Frakkland, Gana, Grikkland, Gvatemala, Holland, Hvíta-Rússland, Írak, Írland, Jórdanía, Kasakstan, Katar, Kostaríka, Króatía, Kúveit, Kýpur, Lettland, Litáen, Líbanon, Lúxemborg, Lýðveldið Kongó, Marokkó, Noregur, Nýja-Sjáland, Óman, Pakistan, Panama, Paragvæ, Perú, Portúgal, Pólland, Púertó Ríkó, Rúmenía, Sambía, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Sádi-Arabía, Serbía, Síle, Slóvakía, Slóvenía, Srí Lanka, Sviss, Svíþjóð, Tékkland, Tyrkland, Ungverjaland, Úrúgvæ
  • Stefnumótaforrit eða forrit fyrir myndbandssamtöl í beinni – Þ.m.t. stefnumótaþjónustur og myndbandssamtalsþjónustur í beinni sem miða að því að skapa tengsl milli fólks sem hefur áhuga á rómantík eða vináttu.
    • Á eftirfarandi markaðssvæðum verður slíkt vörumerkt efni með aldurstakmörkum og takmörkunum innan þess markaðssvæðis þar sem efnið var birt upphaflega. Upplýsingar um þær vörur og þjónustu sem eru leyfðar á þínu svæði og um viðbótartakmarkanir er að finna í reglum um efni fyrir fullorðna – stefnumótaþjónustu og myndspjall í beinni.
      • Argentína, Ástralía, Bandaríkin, Brasilía, Bretland, Filippseyjar, Frakkland, Indónesía, Ísrael, Ítalía, Japan, Kanada, Kenía, Kólumbía, Kórea, Nígería, Malasía, Mexíkó, Singapúr, Spánn, Suður-Afríka, Taíland, Taívan, Víetnam, Þýskaland
    • Þetta vörumerkta efni er ekki leyft á eftirfarandi markaðssvæðum:
      • Alsír, Aserbaídsjan, Austurríki, Bangladess, Barein, Belgía, Bólivía, Búlgaría, Danmörk, Dóminíska lýðveldið, Egyptaland, Eistland, Ekvador, Finnland, Gana, Grikkland, Gvatemala, Holland, Hvíta-Rússland, Írak, Írland, Jórdanía, Kambódía, Kasakstan, Katar, Kostaríka, Króatía, Kúveit, Kýpur, Lettland, Litáen, Líbanon, Lúxemborg, Lýðveldið Kongó, Marokkó, Noregur, Nýja-Sjáland, Óman, Pakistan, Panama, Paragvæ, Perú, Portúgal, Pólland, Púertó Ríkó, Rúmenía, Sambía, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Sádi-Arabía, Serbía, Síle, Slóvakía, Slóvenía, Srí Lanka, Sviss, Svíþjóð, Tékkland, Tyrkland, Ungverjaland, Úkraína, Úrúgvæ
  • Orkudrykkir – Þetta vörumerkta efni takmarkast við áhorfendur 18 ára og eldri og ætti ekki að sýna ólögráða einstaklinga. Frekari leiðbeiningar er að finna í kröfunum fyrir tiltekna markaði.
    • Þetta vörumerkta efni er ekki leyft á eftirfarandi markaðssvæðum:
      • Kúveit
  • Stiklur fyrir kvikmyndir, sjónvarpsþætti og leiki – Frekari leiðbeiningar er að finna í kröfum fyrir tiltekna markaði.
  • Fjármálaþjónusta – Þ.m.t. lán, kreditkort, tryggingaþjónusta, fjárfestingaþjónusta og útlán og umsýsla fjármálagjörninga.
    • Á eftirfarandi markaðssvæðum verður slíkt vörumerkt efni með aldurstakmörkum og takmörkunum innan þess markaðssvæðis þar sem efnið var birt upphaflega. Frekari upplýsingar um hvaða vörur og þjónusta eru leyfðar á þínu svæði og frekari takmarkanir er að finna í stefnu okkar um auglýsingar fyrir fjármálaþjónustu.
      • Argentína, Ástralía, Bandaríkin, Brasilía, Bretland, Egyptaland, Filippseyjar, Frakkland, Indónesía, Ítalía, Japan, Kanada, Kólumbía, Kórea, Malasía, Mexíkó, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Sádi-Arabía, Singapúr, Spánn, Suður-Afríka, Taíland, Taívan, Tyrkland, Víetnam, Þýskaland
    • Þetta vörumerkta efni er ekki leyft á eftirfarandi markaðssvæðum:
      • Alsír, Aserbaídsjan, Austurríki, Bangladess, Barein, Belgía, Bólivía, Búlgaría, Danmörk, Dóminíska lýðveldið, Eistland, Ekvador, Finnland, Gana, Grikkland, Gvatemala, Holland, Hvíta-Rússland, Írak, Írland, Ísrael, Jórdanía, Kambódía, Kasakstan, Katar, Kenía, Kostaríka, Króatía, Kúveit, Kýpur, Lettland, Litáen, Líbanon, Lúxemborg, Lýðveldið Kongó, Marokkó, Nígería, Noregur, Nýja-Sjáland, Óman, Pakistan, Panama, Paragvæ, Perú, Portúgal, Pólland, Púertó Ríkó, Rúmenía, Sambía, Serbía, Síle, Slóvakía, Slóvenía, Srí Lanka, Sviss, Svíþjóð, Tékkland, Ungverjaland, Úkraína, Úrúgvæ
  • Lausasölulyf
    • Á eftirfarandi markaðssvæðum verður slíkt vörumerkt efni takmarkað við notendur eldri en 18 ára og markaðssvæðið þar sem efnið var birt upphaflega. Nánari upplýsingar um viðbótartakmarkanir og frekari upplýsingar um þitt land er að finna í reglum okkar um auglýsingar fyrir heilbrigðisþjónustu og lyfjavörur.
      • Argentína, Aserbaídsjan, Ástralía, Bandaríkin, Bangladess, Barein, Brasilía, Bretland, Egyptaland, Frakkland, Hvíta-Rússland, Ísrael, Írak, Jórdanía, Kanada, Kasakstan, Katar, Kólumbía, Kúveit, Líbanon, Marokkó, Mexikó, Óman, Pakistan, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Sádí-Arabía, Spánn, Suður-Afríka, Þýskaland
    • Þetta vörumerkta efni er ekki leyft á eftirfarandi markaðssvæðum:
      • Alsír, Austurríki, Belgía, Bólivía, Búlgaría, Danmörk, Dóminíska lýðveldið, Eistland, Ekvador, Filippseyjar, Finnland, Gana, Grikkland, Gvatemala, Holland, Indónesía, Írland, Ítalía, Japan, Kambódía, Kenía, Kostaríka, Kórea, Króatía, Kýpur, Lettland, Litáen, Lúxemborg, Lýðveldið Kongó, Malasía, Nígería, Noregur, Nýja-Sjáland, Panama, Paragvæ, Perú, Portúgal, Pólland, Púertó Ríkó, Rúmenía, Sambía, Serbía, Singapúr, Síle, Slóvakía, Slóvenía, Srí Lanka, Sviss, Svíþjóð, Taíland, Taívan, Tékkland, Tyrkland, Ungverjaland, Úkraína, Úrúgvæ, Víetnam
  • Lyfseðilsskyld lyf
    • Á eftirfarandi markaðssvæðum verður slíkt vörumerkt efni takmarkað við notendur eldri en 18 ára og markaðssvæðið þar sem efnið var birt upphaflega. Nánari upplýsingar um viðbótartakmarkanir og frekari upplýsingar um þitt land er að finna í reglum okkar um auglýsingar fyrir heilbrigðisþjónustu og lyfjavörur.
      • Kanada og Bandaríkin.
    • Þetta vörumerkta efni er ekki leyft á eftirfarandi markaðssvæðum:
      • Alsír, Argentína, Aserbaídsjan, Austurríki, Ástralía, Bangladess, Barein, Belarús, Belgía, Bólivía, Bretland, Búlgaría, Danmörk, Dóminíska lýðveldið, Egyptaland, Eistland, Ekvador, Filippseyjar, Finnland, Frakkland, Gana, Grikkland, Gvatemala, Holland, Indónesía, Írak, Írland, Ísrael, Ítalía, Japan, Jórdanía, Kambódía, Kanada, Kasakstan, Katar, Kenía, Kostaríka, Kólumbía, Kórea, Króatía, Kúveit, Kýpur, Lettland, Litáen, Líbanon, Lúxemborg, Lýðveldið Kongó, Malasía, Marokkó, Mexíkó, Nígería, Noregur, Nýja-Sjáland, Óman, Pakistan, Panama, Paragvæ, Perú, Portúgal, Pólland, Púertó Ríkó, Rúmenía, Sambía, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Sádi-Arabía, Serbía, Singapúr, Síle, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Srí Lanka, Suður-Afríka, Sviss, Svíþjóð, Taíland, Taívan, Tékkland, Tyrkland, Ungverjaland, Úkraína, Úrúgvæ, Víetnam, Þýskaland
  • Vítamínuppbót
    • Á eftirfarandi markaðssvæðum verður slíkt vörumerkt efni takmarkað við notendur eldri en 18 ára og markaðssvæðið þar sem efnið var birt upphaflega. Nánari upplýsingar um viðbótartakmarkanir og frekari upplýsingar um þitt land er að finna í reglum okkar um auglýsingar fyrir heilbrigðisþjónustu og lyfjavörur.
      • Bandaríkin, Bretland, Filippseyjar, Frakkland, Indónesía, Ísrael, Ítalía, Japan, Kanada, Kórea, Malasía, Spánn, Taíland, Taívan, Víetnam, Þýskaland.
    • Þetta vörumerkta efni er ekki leyft á eftirfarandi markaðssvæðum:
      • Alsír, Argentína, Aserbaídsjan, Austurríki, Ástralía, Bangladess, Barein, Belgía, Bólivía, Brasilía, Búlgaría, Danmörk, Dóminíska lýðveldið, Egyptaland, Eistland, Ekvador, Finnland, Gana, Grikkland, Gvatemala, Holland, Hvíta-Rússland, Írak, Írland, Jórdanía, Kambódía, Kasakstan, Katar, Kenía, Kostaríka, Kólumbía, Króatía, Kúveit, Kýpur, Lettland, Litáen, Líbanon, Lúxemborg, Lýðveldið Kongó, Marokkó, Mexíkó, Nígería, Noregur, Nýja-Sjáland, Óman, Pakistan, Panama, Paragvæ, Perú, Portúgal, Pólland, Púertó Ríkó, Rúmenía, Sambía, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Sádi-Arabía, Serbía, Singapúr, Síle, Slóvakía, Slóvenía, Srí Lanka, Suður-Afríka, Sviss, Svíþjóð, Tékkland, Tyrkland, Ungverjaland, Úkraína, Úrúgvæ
  • Fjárhættuspil, lottó og leikir með raunverulega peninga
    • Á eftirfarandi markaðssvæðum verður slíkt vörumerkt efni takmarkað við notendur eldri en 18 ára og markaðssvæðið þar sem efnið var birt upphaflega. Nánari upplýsingar um viðbótartakmarkanir og frekari upplýsingar um þitt land er að finna í reglum okkar um auglýsingar fyrir fjárhættuspil og leiki.
      • Argentína, Ástralía, Bandaríkin, Brasilía, Bretland, Filippseyjar, Frakkland, Ísrael, Japan, Kanada, Kólumbía, Mexíkó, Sádi-Arabía, Singapúr, Taívan, Tyrkland, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Spánn, Víetnam, Þýskaland.
    • Þetta vörumerkta efni er ekki leyft á eftirfarandi markaðssvæðum:
      • Alsír, Aserbaídsjan, Austurríki, Bangladess, Barein, Belgía, Bólivía, Búlgaría, Danmörk, Dóminíska lýðveldið, Eistland, Ekvador, Egyptaland, Finnland, Gana, Grikkland, Gvatemala, Holland, Hvíta-Rússland, Indónesíu, Írak, Írland, Ítalía, Jórdanía, Kambódía, Kasakstan, Katar, Kenía, Kostaríka, Kórea, Króatía, Kúveit, Kýpur, Lettland, Litáen, Líbanon, Lúxemborg, Lýðveldið Kongó, Malasía, Marokkó, Nígería, Noregur, Nýja-Sjáland, Óman, Pakistan, Panama, Paragvæ, Perú, Portúgal, Pólland, Púertó Ríkó, Rúmenía, Sambía, Serbía, Síle, Slóvakía, Slóvenía, Srí Lanka, Suður-Afríka, Sviss, Svíþjóð, Taíland, Tékkland, Ungverjaland, Úkraína, Úrúgvæ
  • Nærföt, - Þar á meðal brjóstahöld, kvenmannsnærföt, aðskornar nærbuxur, sundskýlur og boxernærbuxur, sýndar einar sér eða á fyrirsætu. Frekari leiðbeiningar er að finna í kröfunum fyrir tiltekna markaði.
    • Athugið: Ekki er heimilt að sýna hálfnakinn eða fáklæddan einstakling undir 18 ára aldri.
  • Auglýsingar frá stjórnvöldum og milliríkjastofnunum - TikTok leyfir ekki greiddar pólitískar auglýsingar.

Hins vegar geta staðfestar ríkisstofnanir og milliríkjastofnanir átt í samstarfi við efnisframleiðendur til að búa til vörumerkt efni, að því tilskildu að það sé takmarkað við:

  • Kynning á framtaksverkefnum á sviði ferðaþjónustu, menningar eða afþreyingar
  • Kynning á verulegum almannahagsmunum sem varða velferð eða heilsu almennings, svo sem lýðheilsu, öryggi eða menntun
  • Kynning á atvinnutækifærum eða tækifærum til sjálfboðastarfs
  • Opinberir aðilar sem bera ábyrgð á kosningaeftirliti geta átt í samstarfi við efnisframleiðendur við framleiðslu vörumerkts efnis um kosningar og þjóðaratkvæðagreiðslur. Þetta vörumerkta efni takmarkast við verkferli og aðferðir við þátttöku í kosningum eða þjóðaratkvæðagreiðslum, þar á meðal upplýsingar um framkvæmd, skráningu á kjörskrá, hvatningu til þátttöku og auglýsingar fyrir störf sem tengjast kosningum eða tækifærum til sjálfboðastarfs.