Síðast uppfært: 10. ágúst 2026
Table of contents
- Upplýsingar um persónuvernd Gemini-forrita
- Hvaða gögnum er safnað?
- Hvernig gögnin þín eru notuð
- Svona fá Gemini-forrit aðstoð frá Google-þjónustum
- Svona virka Gemini-forrit með tengdum forritum
- Hljóðeiginleikar
- Málun
- Stillingar þínar
- Hversu lengi við varðveitum gögnin þín
- Beiðni um fjarlægingu efnis og útflutningur upplýsinga þinna
- Annað sem gott er að vita
- Virðið réttindi annarra
- Spurningar um persónuvernd
- Almennt
- Hvað eru Gemini-forrit?
- Hvernig get ég andmælt vinnslu á gögnunum mínum eða beðið um að rangar upplýsingar í svörum Gemini-forrita séu leiðréttar?
- Á hvaða lagalegu forsendum byggir úrvinnsla Google á gögnum úr Gemini-forritum samkvæmt gagnvaverndarlögum í Evrópusambandinu (ESB) eða Bretlandi?
- Notarðu Gemini-forritaspjallið mitt til að sýna mér auglýsingar?
- Hver hefur aðgang að spjallinu mínu og hvernig bætir mennsk yfirferð Gemini fyrir alla?
- Hversu lengi varðveitir Google tímabundið spjall og spjall sem ég á þegar slökkt er á „Halda virkni“ og hvað gerir Google við þessi gögn?
- Hvernig notar Google ábendingarnar mínar?
- Hverju stjórnar stillingin „Halda virkni“?
- Hvernig get ég stjórnað því hvort Google noti hljóðupptökurnar mínar og vídeó og skjádeilingar í raunspjalli við Gemini til að bæta þjónustur sínar?
- Hvernig notar Gemini-forrit vistaðar upplýsingar og leiðbeiningar?
- Hvernig get ég stjórnað því hvort Gemini-forrit nota fyrra spjall til að sérsníða upplifun mína?
- Hvernig meðhöndlar Google gögnin mín þegar ég nota Gemini-forrit án þess að vera innskráð(ur)?
- Upplýsingar um staðsetningu og aðrar heimildir
- Hvaða staðsetningarupplýsingum safna Gemini-forrit, hvers vegna og hvernig eru þær notaðar?
- Hvernig veit ég hvort Gemini-forrit hafa aðgang að og nota nákvæma staðsetningu mína?
- Hvar eru gögnin mín vistuð þegar Gemini og Google-hjálpari vinna saman?
- Hvernig stjórna ég heimildum í snjalltækinu þegar Gemini er hjálpari tækisins?
- Upphleðslur
- Tengd forrit í Gemini
- Gemini Spark
- Gemini-raunspjall
- Gemini í Chrome
- Sjálfvirkni skjás í Android-forritum
- Shopping
- Gems frá Google Labs
- Innflutt gögn frá öðrum gervigreindarverkvöngum
- Glósubækur
- Notandamyndir
- Canvas
- Gemini í macOS
-
- Þjónustuskilmálar
- Almennt
Upplýsingar um persónuvernd Gemini-forrita
Síðast uppfært: 29. júní 2026
Þessar upplýsingar eru viðbót við persónuverndarstefnu Google og útskýra hvernig Google vinnur úr gögnunum þínum þegar þú átt í samskiptum við Gemini, persónulega gervigreindarhjálparann þinn frá Google, í gegnum þjónusturnar sem taldar eru upp hér („Gemini-forrit“ eða „Gemini“ til styttingar), þegar þú ert skráð(ur) inn. Persónuverndarstefna Google útskýrir hvernig Google vinnur úr gögnunum þínum þegar þú notar Gemini án þess að vera innskráð(ur).
Gemini-forrit eru á vegum Google Ireland Limited á Evrópska efnahagssvæðinu og í Sviss, og Google LLC alls staðar annars staðar. Hér fyrir neðan er vísað í bæði fyrirtækin sem „Google“.
Upplýsingar sem þú veitir Gemini-forritum
- Það sem þú segir við Gemini-forrit (eins og skipanir sem þú sendir inn eða segir og verkefni sem þú biður Gemini um að gera fyrir þig)
- Það sem þú deilir með Gemini-forritum (svo sem skrár, vídeó, skjáir sem þú spyrð um, myndir og efni af síðum sem þú deilir úr vafranum)
- Textauppskriftir og upptökur af samskiptum þínum í raunspjalli við Gemini (þar á meðal hljóð, vídeó og skjáir sem þú deilir með raunspjallinu)
- Ábendingar frá þér
- Fyrirmæli sem þú gefur, til dæmis í Gems og færni sem og leiðbeiningum fyrir Gemini („Vistaðar upplýsingar“ á sumum svæðum)
Upplýsingar sem við söfnum þegar þú notar Gemini-forrit
- Efni sem Gemini-forrit búa til (svo sem texti, kóði, hljóð, myndir, vídeó, tónlist, opnir tenglar, tilvitnanir, samantektir á spjalli og sérsniðin innsýn)
- Upplýsingar um skref sem tæknin okkar tekur til að framkvæma verkefni fyrir þig eða svara skipunum þínum, eins og hugsunarskref líkans
- Upplýsingar úr forritunum þínum, vöfrum og tækjum
- Upplýsingar úr tengdum forritum (þ.m.t. þjónustum þriðju aðila, s.s. verkfærum þjóns fyrir samskiptareglur samhengis líkans) og öðrum Google-þjónustum sem þú notar með Gemini-forritum (svo sem leitar- eða YouTube-ferillinn þinn eða samhengi síðu og vefslóð úr Chrome)
- Upplýsingar um forritin í tækinu þínu (til dæmis til að hjálpa þér að koma hlutum í verk með því að nota forritin þín)
- Upplýsingar um forrit, vafra og tæki sem þú notar til að opna Gemini-forrit (svo sem auðkenni, gerð og stillingar vafra, gerð og stillingar tækis og stýrikerfi)
- Samskipti forrita, vafra og tækja við Gemini-forrit (svo sem skrár yfir samskipti, afkastamæligögn og upplýsingar um hrun og villuleit)
- Kerfisheimildir og gögn tækis þegar þú notar Gemini-snjallforrit, svo sem skrár yfir símtöl og skilaboð, tengiliðir (til að hjálpa þér að halda sambandi), uppsett forrit (til dæmis Klukka), kjörstillingar tungumála (til að hjálpa þér að tala við Gemini), skjáefni (til að hjálpa þér að bregðast við því) og aðrar upplýsingar um forrit, svo sem samhengi síðu og vefslóð (þegar þú notar Gemini-yfirlögn til að spyrja spurninga)
- Fjarvefskoðunargögn á borð við fótspor sem innihalda auðkenningarupplýsingar vefsvæðisins þíns og skjámyndir eða annað efni á síðunni
- Samhengisupplýsingar úr tækjum og þjónustum sem þú notar með Gemini (svo sem heiti snjallheimilistækja og spilunarlista)
- Gögn um samskipti þín við opinbert efni Gemini-forrita
- Viðbótarupplýsingar: upplýsingar sem viðbótareiginleikar Gemini-forrita safna og þú velur að nota.
- Staðsetning: svæði tækisins, IP-tala eða heimilisföng vinnu og heimilis sem skráð eru á Google-reikningnum þínum. Nánar á g.co/privacypolicy/location.
- Áskriftarupplýsingar: ef þú ert með greidda áskrift að Google AI, upplýsingar sem tengjast áskriftinni.
Google notar þessi gögn, eins og lýst er í persónuverndarstefnu okkar, til að:
- Veita þjónustu
- Viðhalda og bæta þjónustur okkar
- Þróa nýjar þjónustur
- Sérsníða þjónustur okkar
- Sérsníða þjónustur okkar
- Eiga í samskiptum við þig
- Mæla árangur
- Vernda Google, notendur okkar og almenning
Þessi notkun nær yfir skapandi gervigreindarlíkön og aðra vélnámstækni sem knýr þjónustur okkar.
Mannlegir yfirlesarar (þar á meðal þjálfaðir yfirlesarar frá þjónustuaðilum okkar) fara yfir ákveðin gögn sem við söfnum með þetta í huga. Ekki slá inn trúnaðarupplýsingar sem þú vilt ekki að yfirlesari sjái eða Google noti til að bæta þjónustur okkar, þar á meðal vélnámstækni.
- Gemini-forrit reiða sig á aðrar þjónustur og innviði Google. Til dæmis byggjast sum svör Gemini á niðurstöðum úr Leit. Þegar Gemini fær aðstoð frá Google-hjálpara við tilteknar flýtiraddaðgerðir gilda viðeigandi stillingar Hjálpara.
- Ef þú ert 18 ára eða eldri og uppfærir í Gemini-forrit verður símtala- eða skilaboðaferillinn þinn hugsanlega færður úr vef- og forritavirkni yfir í Gemini-forritavirkni á sumum svæðum. Þetta bætir upplifun þína af Gemini-forritum, til dæmis tillögur að tengiliðum. Nánar.
Gemini-forrit virka með tengdum forritum, þar á meðal Google-forritum og þjónustum þriðju aðila. Gemini vistar og notar upplýsingar úr tengdum forritum í samræmi við þessa tilkynningu, þar á meðal til að veita og bæta Gemini-forrit. Tengd Google-forrit vista og nota gögnin þín í samræmi við reglur sínar og persónuverndarstefnu Google, þ.m.t. til að veita og bæta þjónustu sína. Ef þú notar Gemini-forrit til að eiga samskipti við þjónustur þriðju aðila vinna þær úr gögnunum þínum í samræmi við eigin persónuverndarstefnur.
Gjaldgengir notendur með persónulega greind geta tengt sum Google-forrit við Gemini-forrit til að fá nýjar og sérsniðnari upplifanir. Nánar um gjaldgengi.
Gemini-forrit gætu virkjast óvart, til dæmis ef hljóð sem hljómar eins og „OK Google“ heyrist eða ef þú virkjar þau óvart með snertingu. Ef Gemini-forrit svara meðhöndla þau það eins og venjulega virkjun. Þessi gögn eru notuð til að bæta Google-þjónustur í samræmi við stillingarnar þínar. Þetta á meðal annars við um Gemini-líkön, önnur skapandi gervigreindarlíkön sem knýja Gemini-forrit og tækni sem fækka á tilvikum þar sem upptökur eru virkjaðar fyrir mistök
Þegar þú átt samskipti við Canvas-forrit sem notandi hefur búið til getur höfundur forritsins séð öll gögn sem þú deilir og vistað þau þar sem hann vill. Google býður upp á geymslu fyrir Canvas-forritagögn í Firebase en höfundur forritsins getur líka vistað gögnin þín annars staðar. Allir sem eru með opna tengilinn geta skoðað og breytt gögnum sem vistuð eru með forritinu. Sýndu varkárni og deildu aðeins gögnum með Canvas-forritum sem þú treystir.
Þú getur farið á Google-reikninginn þinn til að stjórna gögnunum þínum og persónuvernd. Gemini-forrit bjóða einnig upp á stillingar sem hjálpa þér að stjórna gögnum þínum og upplifun, til dæmis:
- Farðu í Gemini-forritavirkni til að skoða og eyða virkninni þinni (meðal annars innfluttu spjalli), breyta því eftir hversu langan tíma eyða á gögnum sjálfkrafa og stjórna því hvort gögnin þín séu notuð til að bæta gervigreind Google. Þessar þjónustur eru til dæmis skapandi gervigreindarlíkön sem knýja Gemini-forrit. Gemini-stillingarnar þínar stjórna ekki vinnslu á spjallinu þínu til að búa til nafnlaus gögn til að bæta Google-þjónustur. Þó að slökkt sé á „Varðveita virkni“ notar Google samt sem áður spjallið þitt til að svara þér og stuðla að öryggi Google, notenda okkar og almennings, meðal annars með aðstoð mennskra yfirlesara.
- Stjórnaðu Gems og færni í Gem-stjóranum og Færnistjóranum.
- Stjórnaðu opnum tenglum í Opnu tenglarnir þínir.
- Stjórnaðu aðgangi Gemini-forrita að öðrum forritum og gögnum (þar á meðal þjónustum þriðju aðila eins og Model Context Protocol-þjónaverkfærum) í stillingum fyrir tengd forrit.
- Stjórnaðu upplýsingum sem þú hefur beðið Gemini um að vista.
- Stjórnaðu stillingum Gemini Spark.
- Nánar um hvernig þú stjórnar sérsniðseiginleikum, þ.m.t. sérsniði með minni og persónulegri greind.
- Þú getur notað Gemini, sem er hýst af Google-forritinu, sem hjálpara tækis í Android-tæki. Nánar um hvernig þú stjórnar forritaheimildum Google (eins og staðsetningu tækis, hljóðnema, tilkynningaheimildum og heimildum myndavélar).
- Nánar um hvernig þú stjórnar stillingum fyrir Gemini-snjallforritið.
- Nánar um hvernig þú stillir Google-forritið sem sjálfgefinn stafrænan hjálpara.
Aðrar Google-stillingar breytast ekki þó að þú breytir stillingum Gemini-forrita. Þessar stillingar, til dæmis vef- og forritavirkni eða staðsetningarferill, gætu haldið áfram að vista staðsetningu og önnur gögn þegar þú notar aðrar Google-þjónustur.
Við geymum gögnin þín í mislangan tíma, allt eftir því um hvaða gögn er að ræða og hvernig við notum þau, eins og útskýrt er í persónuverndarstefnu Google og Svona geymir Google gögn sem við söfnum.
- Þú getur breytt stillingum fyrir sjálfvirka eyðingu í Gemini-forritavirkni úr sjálfgefnum 18 mánuðum í 3 mánuði, 36 mánuði eða ótímabundið. Þú getur líka eytt spjalli við Gemini-forrit handvirkt hvenær sem er.
- Spjall sem mennskir yfirlesarar hafa farið yfir (og tengd gögn eins og tungumálið þitt, tegund tækis, staðsetningarupplýsingar og ábendingar) eyðist ekki þegar þú eyðir virkninni þinni. Þess í stað er það geymt í allt að þrjú ár.
- Sum gögn eru vistuð þar til þú eyðir Google-reikningnum þínum, til dæmis upplýsingar um hversu oft þú notar Gemini-forrit.
- Við varðveitum sum gögn lengur ef góðar og gildar lagalegar eða viðskiptalegar ástæður eru til, svo sem öryggisástæður, til að sporna gegn svikum og misnotkun eða vegna bókhalds.
- Þegar þú notar Gemini með öðrum Google-þjónustum (eins og Veski eða YouTube) kunna þær að vista og nota virkni í samræmi við eigin reglur og persónuverndarstefnu Google. Ef þú eyðir Gemini-forritavirkni verður gögnum sem vistuð eru í hinum þjónustunum ekki eytt.
Kynntu þér nánar hversu lengi Google varðveitir gögn og hversu langan tíma það tekur okkur að eyða upplýsingunum þínum.
- Gemini-forrit eru í stöðugri þróun og geta birt rangar eða móðgandi upplýsingar (þar á meðal um fólk) sem endurspegla ekki viðhorf Google.
- Sumir eiginleikar Gemini-forrita eru hannaðir til að hjálpa þér að ljúka verkefnum eins og að stjórna Workspace-efninu þínu, eiga samskipti við vefsvæði og hjálpa þér að eiga samskipti við aðra. Vertu á varðbergi þegar þú notar þessa eiginleika þar sem Gemini getur gert mistök, til dæmis keypt hluti eða deilt gögnunum þínum óvænt með þriðju aðilum.
- Fylgstu vel með vefvafri og verkefnum Gemini og gríptu inn í ef þörf er á.
- Google fylgist ekki með eða tryggir gögn úr sérsniðnum tengdum forritum þriðju aðila. Ef þú velur að tengja þau gætu gögnin þín, aðgangsorð, tæki og reikningar orðið berskjölduð fyrir óheimilum aðgangi.
- Ekki reiða þig á Gemini-forrit fyrir greiningu, meðferð, læknisráðgjöf eða lagalega, fjármálalega eða aðra faglega aðstoð. Frálag þess er eingöngu til upplýsingar.
Nánari upplýsingar er að finna í persónuverndarmiðstöð Gemini-forrita og í persónuverndarstefnu Google.
Virtu réttindi annarra þegar þú notar Gemini. Fáðu leyfi áður en þú tekur upp fólk í spjalli í rauntíma eða notar andlit eða raddir þess í Gemini. Þú skalt bara hlaða upp, búa til og breyta efni sem þú átt rétt á og hefur leyfi til að nota.
Spurningar um persónuvernd
Síðast uppfært: 10. ágúst 2026
Almennt
Hvað eru Gemini-forrit?Gemini-forritin sem vísað er til í upplýsingum um persónuvernd Gemini-forrita og persónuverndarmiðstöð Gemini-forrita eru:
- Gemini-vefforritið er hægt er að nota á gemini.google.com og í hliðarstikum vafra.
- Gemini-snjallforritin, sem eru:
- Gemini-forritið, þar á meðal sem sjálfgefinn stafrænn hjálpari, í Android. Athugaðu að Gemini er hýst af Google-forritinu, jafnvel þótt þú sækir Gemini-forritið
.
- Gemini-forritið í iOS.
- Gemini-forritið, þar á meðal sem sjálfgefinn stafrænn hjálpari, í Android. Athugaðu að Gemini er hýst af Google-forritinu, jafnvel þótt þú sækir Gemini-forritið
- Gemini-forrit í MacOS
- Gemini í Google Messages-forritinu á ákveðnum stöðum.
- Gemini í Android Auto
- Gemini í innbyggðu Google
- Gemini í Kortum
- Eiginleikinn Gemini í Chrome. Nánar um tiltækileika.
- Gemini í Android XR.
„Gemini-forrit“ eru einnig stundum kölluð „Gemini-forritið“ eða „Gemini“. Ef þú ert með Google-vinnureikning eða -skólareikning gæti notkun þín á Gemini-forritum fallið undir aðra skilmála um gagnameðferð. Þú finnur frekari upplýsingar varðandi skapandi gervigreind í persónuverndarmiðstöð Google Workspace.
Stór tungumálalíkön (LLM, þar á meðal Gemini-forrit) geta fengið ofskynjanir og sett fram rangar upplýsingar eins og um staðreyndir sé að ræða.
Samkvæmt ákveðnum persónuverndarlögum, þar á meðal almennu persónuverndarreglugerð ESB, gætirðu átt rétt á að:
- Andmæla vinnslu persónuupplýsinga þinna, eða
- Óska eftir því að rangar persónuupplýsingar í svörum Gemini-forrita séu leiðréttar.
Til að nýta þér þessi réttindi geturðu sent inn beiðni í hjálparmiðstöðinni.
Þú getur einnig búið til beiðni beint í Gemini-forritum. Fyrir neðan svar Gemini-forritsins skaltu velja Meira
Tilkynna lagalegt vandamál.
Önnur gögn
Til að fá frekari upplýsingar um hvernig þú nýtir þér réttindi þín í tengslum við gögn sem við höfum safnað skaltu lesa persónuverndarstefnu Google og upplýsingar um persónuvernd Gemini-forrita.
Ef gagnaverndarlög Evrópusambandsins eða Bretlands gilda um úrvinnslu upplýsinganna þinna skaltu lesa eftirfarandi vandlega.
Þegar þú skráir þig inn og notar Gemini-forrit vinnur Google úr upplýsingunum þínum í þeim tilgangi og á þeim lagalega grundvelli sem lýst er hér að neðan.
Þegar við tölum um „upplýsingarnar þínar í Gemini-forritum“ hér að neðan eigum við við gagnaflokka sem taldir eru upp í upplýsingum um persónuvernd Gemini-forrita og samanstanda af: (i) upplýsingum sem þú veitir Gemini-forritum (svo sem skipanir og efni sem þú hleður upp, upptökur og textauppskriftir af samskiptum þínum í raunspjalli við Gemini, ábendingar frá þér og leiðbeiningar fyrir Gemini); (ii) upplýsingum sem við söfnum þegar þú notar Gemini-forrit (svo sem efni sem Gemini-forrit búa til, upplýsingar úr forritum þínum, vöfrum, tækjum og tengdum forritum og gögn tækis sem safnað er þegar þú notar Gemini-snjallforrit); (iii) upplýsingum sem safnað er með viðbótareiginleikum Gemini-forrita sem þú velur að nota; (iv) staðsetningarupplýsingum; og (v) áskriftarupplýsingum.
Lagalegar forsendur Google eru:
- Samningsefndir. Við vinnum úr upplýsingum þínum í Gemini-forritum og öðrum upplýsingum sem þú gefur Gemini-forritum leyfi til að vinna úr, þar á meðal þegar þú tengir Gemini-forrit við aðra þjónustu, til að veita og viðhalda þeirri þjónustu Gemini-forrita sem þú hefur óskað eftir samkvæmt þjónustuskilmálum Google. Við vinnum til dæmis úr upplýsingum þínum í Gemini-forritum til að svara fyrirspurnum þínum og gera notkun ýmissa eiginleika Gemini-forrita mögulega, svo sem vídeósköpun, myndvinnslu og notkun skjáaðgerða til að spjalla við Gemini.
- Lögmætir hagsmunir Google og þriðju aðila með viðeigandi öryggisráðstöfunum til að tryggja persónuvernd þína.
- Við vinnum úr upplýsingum úr opinberum heimildum og upplýsingum úr Gemini-forritum í þeim tilgangi að veita, viðhalda, bæta og þróa vörur, þjónustur og vélnámstækni Google.
- Úrvinnsla þessara upplýsinga í þessum tilgangi er nauðsynleg til að tryggja lögmæta hagsmuni Google og notenda okkar til að:
- Veita, viðhalda og bæta þjónustur okkar og uppfylla þarfir notenda (svo sem að nota spjall til að bæta líkön og svör Gemini-forrita til að tryggja öryggi og nákvæmni).
- Þróa nýjar vörur og eiginleika sem nýtast notendum okkar (svo sem að læra hvernig best er að beina beiðnum áfram á ný líkön sem henta best til að svara tiltekinni spurningu eða þjálfa ný líkön til að vinna úr þessum beiðnum).
- Öðlast betri skilning á því hvernig fólk notar þjónustur okkar til að tryggja og bæta frammistöðu þjónusta okkar (svo sem að fá fram mæligildi til að skilja hvernig notendur nota Gemini-forrit til að bæta upplifun notenda).
- Sérsníða þjónustur okkar til að bæta upplifun notenda (til dæmis með því að nota staðsetningu þína og fyrri samtöl til að Gemini-forrit geti veitt meira viðeigandi svör).
- Úrvinnsla þessara upplýsinga í þessum tilgangi er nauðsynleg til að tryggja lögmæta hagsmuni Google og notenda okkar til að:
- Við vinnum einnig úr upplýsingum þínum í Gemini-forritum til að viðhalda virkni, öryggi og áreiðanleika Gemini-forrita, þ.m.t. með því að greina, koma í veg fyrir og bregðast við svikum, misnotkun, ógnunum við öryggi og tæknilegum vandamálum sem gætu haft áhrif á Google, notendur okkar eða almenning.
- Úrvinnsla þessara upplýsinga í þessum tilgangi er nauðsynleg til að tryggja lögmæta hagsmuni Google, notenda okkar og almennings til að:
- Greina, koma í veg fyrir eða bregðast á annan hátt við svikum, misnotkun, öryggi eða tæknivandamálum sem tengjast þjónustum okkar (til dæmis til að lagfæra villur og framkvæma úrræðaleit vegna bilana).
- Verja réttindi, eignir eða öryggi Google, notenda okkar og almennings fyrir tjóni, að því marki sem lög kveða á um eða heimila (til dæmis með því að uppfæra öryggisflokkara og síur líkana).
- Framkvæma rannsóknir sem bæta þjónustur okkar fyrir notendur og koma almenningi til góða.
- Fylgja eftir réttarkröfum, meðal annars með því að rannsaka hugsanleg brot á gildandi þjónustuskilmálum (til dæmis með því að rannsaka grunsamlega virkni og samskipti sem tilkynnt hafa verið sem vafasöm).
- Úrvinnsla þessara upplýsinga í þessum tilgangi er einnig nauðsynleg til að tryggja lögmæta hagsmuni Google og viðskiptaaðila okkar svo að við getum uppfyllt skuldbindingar okkar gagnvart samstarfsaðilum svo sem þróunaraðilum og rétthöfum (til dæmis með því að verða við fjarlægingarbeiðnum eigenda hugverkaréttar).
- Úrvinnsla þessara upplýsinga í þessum tilgangi er nauðsynleg til að tryggja lögmæta hagsmuni Google, notenda okkar og almennings til að:
- Til að verða við beiðni frá þér, til dæmis til að taka saman tölvupóst frá tilgreindum tengilið, vinnum við úr persónuupplýsingum um aðra sem þú hefur gefið Gemini-forritum (eins og til dæmis þegar þú biður Gemini-forrit um að sækja upplýsingar úr Google Workspace eða Google-myndum).
- Við vinnum úr upplýsingum úr opinberum heimildum og upplýsingum úr Gemini-forritum í þeim tilgangi að veita, viðhalda, bæta og þróa vörur, þjónustur og vélnámstækni Google.
- Lagalegar skyldur. Við vinnum einnig úr upplýsingum þínum í Gemini-forritum til að uppfylla hvers kyns gildandi lög, reglugerðir og málarekstur eða verða við beiðnum frá opinberum aðilum (til dæmis ef okkur berst lagaleg beiðni um upplýsingar frá opinberu yfirvaldi).
- Samþykki þitt. Við reiðum okkur á samþykki þitt þegar þú notar ákveðna eiginleika svo sem Voice Match, Minni og þegar þú leyfir Google að nota hljóðupptökur og upptökur á raunspjalli til að bæta Google-þjónustur fyrir alla. Í þeim tilvikum sem við reiðum okkur á samþykki þitt til að vinna úr upplýsingum áttu rétt á að afturkalla samþykki þitt hvenær sem er.
Spjall þitt við Gemini-forrit er ekki notað til að sýna þér auglýsingar. Ef það breytist munum við greina þér skýrt og greinilega frá því.
Til að fá frekari upplýsingar um það hvernig við tryggjum öryggi og leynd gagna notenda skaltu lesa reglur okkar um persónuvernd og öryggi.
Hvernig mennsk yfirferð auðveldar okkur að bæta Google-þjónustur og vernda Google, notendur okkar og almenning
Mannlegir yfirlesarar (þar á meðal þjálfaðir þjónustuaðilar Google) fara yfir sumt spjall til að bæta Google-þjónustur. Þetta á meðal annars við um Gemini-líkön, önnur skapandi gervigreindarlíkön sem knýja Gemini-forrit og tækni sem á að draga úr óviljandi virkjun.
Yfirlesarar meta hvort svör Gemini-forrita eru af lágum gæðum, röng eða skaðleg. Þeir koma einnig með tillögur að betri svörum. Við notum tillögur þeirra til að hjálpa líkönunum okkar að koma með betri svör í framtíðinni. Einnig er farið yfir spjall til að tryggja öryggi Gemini fyrir alla og til að bregðast við brotum á þjónustuskilmálum Google, þar á meðal reglum um bannaða notkun skapandi gervigreindar. Spjall sem farið er yfir er varðveitt í allt að þrjú ár.
Svona gætum við að persónuvernd þinni í þessu ferli
Við tökum persónuvernd þína alvarlega og seljum engum persónuupplýsingarnar þínar. Tenging spjalls við reikninginn þinn er fjarlægð áður en það er sent til þjónustuveitenda.
Hvernig þú getur stjórnað hverju er deilt með yfirlesurum
Ef þú vilt ekki að farið sé yfir spjallið þitt í framtíðinni til að bæta Google-þjónustur skaltu slökkva á Varðveita virkni. Ef kveikt er á því skaltu ekki slá inn neinar trúnaðarupplýsingar eða önnur gögn sem þú vilt ekki að yfirlesari sjái eða Google noti til að bæta þjónustu sína. Þú getur líka notað tímabundið spjall sem er ekki notað til að bæta gervigreind Google með aðstoð mennskra yfirlesara. Nánar um tímabundið spjall.
Þó að slökkt sé á „Varðveita virkni“ eða þú notir tímabundið spjall notar Google spjallið þitt til að svara þér og stuðla að öryggi Google, notenda okkar og almennings, meðal annars með aðstoð mennskra yfirlesara.
Google þarf að varðveita spjall til að svara þér, hjálpa til við að vernda Google, notendur okkar og almenning og vinna úr ábendingum sem þú velur að senda.
Hér eru frekari upplýsingar:
Bráðabirgðaspjall og spjall sem þú átt þegar slökkt er á Varðveita virkni er vistað á reikningnum þínum í þrjá sólarhringa og er notað til að:
- svara þér með hliðsjón af spjalli síðasta sólarhrings og
- vernda Google, notendur okkar og almenning. Google vistar til dæmis spjall á reikningnum þínum í þrjá sólarhringa svo að hægt sé að nálgast það ef kerfið skyldi bila.
Bráðabirgðaspjall er ekki notað til að þjálfa gervigreindarlíkön Google. Ef slökkt er á „Varðveita virkni“ og þú sendir ekki ábendingar notar Google ekki spjall eftir að slökkt er til að bæta gervigreindarlíkön sín. Hvernig á að hefja tímabundið spjall.
Ef slökkt er á „Varðveita virkni“ og þú velur að senda inn ábendingu safnar Google eftirfarandi gögnum og notar þau til að hjálpa til við að viðhalda og bæta Gemini-forrit:
- ábendingunni þinni,
- samhengi sem getur hjálpað okkur að skilja ábendinguna þína betur, þar á meðal spjalli við þig síðasta sólarhringinn, og
- efni í spjallinu (til dæmis upphleðslur og gögn úr tengdum forritum).
Ábendingarnar þínar, allt efni sem látið er fylgja með (svo sem skrár eða persónulegt efni úr tengdum forritum), tengd samtöl (svo sem skipanir og svör Gemini-forrita) og tengd gögn eru:
- Yfirfarin af sérþjálfuðum teymum. Mennsk yfirferð er nauðsynleg til að greina, meðhöndla og tilkynna hugsanleg vandamál sem ábending nær til. Í sumum tilvikum er um að ræða lagalega skyldu.
- Notuð í samræmi við persónuverndarstefnu Google. Google notar þessi gögn til að veita, bæta og þróa vörur, þjónustur og vélnámstækni Google. Þetta er útskýrt nánar í persónuverndarstefnu okkar.
- Við notum þessi gögn til dæmis til að gera Gemini-forrit öruggari. Þau hjálpa okkur að greina og forðast óöruggar beiðnir eða svör í framtíðinni.
- Vistuð í allt að þrjú ár. Ábendingar sem farið hefur verið yfir, tengd samtöl og önnur tengd gögn eru varðveitt í allt að þrjú ár, án tengingar við Google-reikninginn þinn.
Kynntu þér hvernig þú sendir ábendingar eða tilkynnir vandamál tengd Gemini-forritum.
Ef kveikt er á stillingunni Varðveita virkni:
Spjall og allt sem þú deilir með Gemini (svo sem skrár, vídeó, skjáir og myndir) verður vistað í virkninni þinni.
Vistaða virknin þín inniheldur einnig hljóð, vídeó og skjádeilingar í raunspjalli við Gemini, ábendingar, upplýsingar af vefsvæðum sem þú skoðar með Gemini, upplýsingar um notkun þína á vörum og staðsetningarupplýsingar (þ.m.t. almenn staðsetning tækisins þíns, IP-tala eða heimilisfang vinnu eða heimilis sem er skráð á Google-reikningnum þínum).
Hvernig virknin þín er notuð
Google notar virkni þína til að veita, þróa og bæta þjónustur sínar (þ.m.t. líkön skapandi gervigreindar) sem og til að vernda Google, notendur þess og almenning (með aðstoð mennskra yfirlesara). Gögn sem yfirfarin eru af þjónustuveitendum eru aftengd reikningnum þínum og vistuð í 3 ár. Hljóðupptökurnar þínar og vídeó og skjádeilingar í raunspjalli við Gemini eru ekki sjálfgefið notaðar til að bæta Google-þjónustur. Google kann einnig að nota virkni þína til að sérsníða upplifun þína en það fer eftir stillingum þínum og svæði.
Þú ert við stjórnvölinn
Virkninni þinni verður eytt sjálfkrafa eftir 18 mánuði. Þú getur breytt því í 3 eða 36 mánuði eða valið að eyða ekki sjálfkrafa. Þú getur slökkt á þessari stillingu eða skoðað og eytt virkninni þinni hvenær sem er í Gemini-forritavirkni.
Hafðu í huga
- Gemini-forrit eru hönnuð til að vera í biðstöðu þar til þau eru virkjuð, til dæmis þegar þau heyra „OK Google“. Upptökur geta hafist nokkrum sekúndum fyrir virkjun.
- Gemini getur virkjast fyrir mistök, til dæmis ef það heyrir hljóð sem líkist „OK Google“. Textauppskriftir af slíkum upptökum eru notaðar til að fækka tilvikum þar sem upptökur eru virkjaðar fyrir mistök.
- Ef þú kveikir á þessari stillingu fær Gemini aftur aðgang að forritum sem voru áður tengd.
Ef slökkt er á stillingunni Varðveita virkni:
Í framtíðinni birtist spjallið þitt ekki í virkninni þinni og verður ekki notað til að þjálfa gervigreindarlíkön okkar, nema þú veljir að senda Google ábendingar. Í framtíðinni verður spjall áfram vistað í 72 klukkustundir svo Gemini geti svarað þér, unnið úr ábendingum þínum og verndað Google, notendur þess og almenning.
Hafðu í huga
- Ef þú eyðir virkni verður eldra spjalli sem þjónustuveitendur hafa þegar farið yfir ekki eytt þar sem það er ekki tengt við Google-reikninginn þinn. Það er þess í stað geymt í allt að þrjú ár.
- Sum tengd forrit eru ekki tiltæk þegar slökkt er á þessari stillingu.
- Aðrar stillingar, til dæmis Vef- og forritavirkni eða staðsetningarferill, kunna að halda áfram að vista staðsetningu og önnur gögn þegar þú notar aðrar Google-þjónustur.
- Þó slökkt sé á Varðveita virkni eða Gemini-forritavirkni eytt eyðast ekki gögn í öðrum Google-þjónustum. Kynntu þér hvernig Google-þjónustur varðveita gögn.
- Heimildaskrár sem þú bætir við glósubækurnar þínar eru vistaðar í Gemini Notebook. Skoðaðu persónuverndarstefnu og notkunarskilmála Gemini Notebook.
- Þó slökkt sé á Varðveita virkni eða Gemini-forritavirkni eytt hefur það ekki áhrif á fjarvafrann þinn og gögn og stillingar fjartölvu.
Þú getur breytt þessari stillingu hvenær sem er.
Þú getur leyft Google að nota hljóðupptökurnar þínar og vídeó og skjádeilingar í raunspjalli við Gemini í Gemini-forritavirkni til að bæta þjónustur sínar fyrir alla.
Ef þú kveikir á þessari stillingu:
Google notar hljóðupptökurnar þínar og vídeó og skjádeilingar í raunspjalli við Gemini í Gemini-forritavirkni til að bæta og þróa þjónustur okkar (þar á meðal til að þjálfa skapandi gervigreindarlíkön). Þetta á bæði við um hljóðupptökur og vídeó og skjádeilingar í raunspjalli við Gemini sem eru þegar vistaðar í Gemini-forritavirkni og þær sem eru nýjar.
Mannlegir yfirlesarar fara yfir sumar hljóðupptökur og vídeó og skjádeilingar í raunspjalli við Gemini. Til að gæta persónuverndar þinnar er virkni sem send er til þjónustuveitenda ekki tengd við Google-reikninginn þinn.
Hafðu í huga
- Gemini-forrit eru hönnuð til að vera í biðstöðu þar til þau eru virkjuð, til dæmis þegar þau heyra „OK Google“. Upptökur geta hafist nokkrum sekúndum fyrir virkjun.
- Gemini getur virkjast fyrir mistök, til dæmis ef það heyrir hljóð sem líkist „OK Google“. Slíkar upptökur eru notaðar til að fækka tilvikum þar sem upptökur eru virkjaðar fyrir mistök.
- Ef þú notar Gemini með Voice Match er líkan af röddinni þinni notað tímabundið til að bæta Voice Match.
- Þessi stilling er aðskilin stillingum þínum í öðrum þjónustum, s.s. stillingum Gemini fyrir Home, til að bæta Google-þjónustur með raddupptökum, hljóðupptökum og upptökum af raunspjalli við Gemini. Þú getur stjórnað þessari stillingu í Google Home-ferlinum.
Þú ert við stjórnvölinn
Þú getur slökkt á þessari stillingu og stjórnað og eytt hljóðupptökum og upptökum á vídeóum og skjádeilingum í raunspjalli við Gemini hvenær sem er.
Ef þú slekkur á þessari stillingu:
Hljóðupptökurnar þínar og vídeó og skjádeilingar í raunspjalli við Gemini í Gemini-forritavirkni í framtíðinni verða ekki notuð til að bæta þjónustur okkar (að meðtöldum gervigreindarlíkönum) nema þú sendir Google ábendingu.
Hafðu í huga
- Hljóðupptökur og vídeó og skjádeilingar í raunspjalli við Gemini í framtíðinni verða áfram notuð til að svara þér og tryggja öryggi Gemini.
- Textauppskriftir af spjalli í rauntíma í Gemini-forritavirkni og annað efni sem þú deilir með Gemini-forritum falla undir stillinguna Varðveita virkni sem þú getur slökkt á hvenær sem er.
- Þessi stilling er einnig aðskilin stillingum þínum í öðrum þjónustum. Ef þú slekkur til dæmis á henni mun ekki slokkna á stillingu Gemini-forrita sem leyfir notkun á radd- og hljóðupptökum og upptökum af raunspjalli við Gemini til að bæta Google-þjónustur. Þú getur slökkt á þessari stillingu í Google Home-ferli.
Gemini-forrit nota leiðbeiningarnar þínar („Vistaðar upplýsingar“ á sumum svæðum) til að sérsníða upplifun þína og hjálpa þér að koma hlutunum í verk, til dæmis að ljúka áætluðum aðgerðum og verkefnum. Þessi gögn eru vistuð þar til þú velur að eyða þeim. Þú getur hætt að vista leiðbeiningar hvenær sem er. Nánar.
Gemini getur sérsniðið upplifun þína og hjálpað þér að koma hlutum í verk (eins og verkefnum) með því að vísa í spjallið þitt í Gemini-forritavirkni og nota það til að búa til sérsniðin svör. Kynntu þér hvernig þú kveikir eða slekkur á minniseiginleikanum.
Ef kveikt er á Minni:
- Gemini gæti notað viðkvæmar upplýsingar sem þú gafst upp í spjalli til að sérsníða upplifun þína.
- Þú getur hafið tímabundið spjall til að ræða upplýsingar sem þú vilt ekki að Gemini muni eða noti til að sérsníða upplifun þína.
- Til að koma í veg fyrir að Gemini noti upplýsingar úr fyrra spjalli til að sérsníða upplifun þína skaltu eyða því spjalli.
Þegar þú notar Gemini-forrit án þess að vera innskráð(ur) vinnur Google úr gögnunum þínum (s.s. IP-tölu og gerð vafra) í samræmi við persónuverndarstefnu Google. Gögnin þín eru ekki tengd við Google-reikninginn þinn. Upplýsingar um persónuvernd Gemini-forrita gilda ekki.
Upplýsingar um staðsetningu og aðrar heimildir
Hvaða staðsetningarupplýsingum safna Gemini-forrit, hvers vegna og hvernig eru þær notaðar?Staðsetningargögnum er alltaf safnað þegar þú notar Gemini-forrit svo að svörin séu við hæfi. Til að svara spurningum á borð við „Hvernig er veðrið?“ þurfa Gemini-forrit að vita hvar þú ert.
Hvaðan Gemini-forrit sækja staðsetningargögn og hvernig þau eru notuð
Það er mismunandi hvaðan Gemini-forrit sækja staðsetningargögn. Gemini-forrit nota sjálfgefið svæði út frá IP-tölunni þinni eða heimilisfangi heimilis eða vinnu á Google-reikningnum þínum til að birta viðeigandi svör við spurningum á borð við „Hvernig er veðrið?“
Með leyfi þínu vinna Gemini-forrit einnig úr nákvæmum staðsetningargögnum úr tækinu þínu. Til dæmis geta Gemini-forrit notað nákvæma staðsetningu til að svara spurningum á borð við „hvar er næsta kaffihús?“ af meiri nákvæmni. Gemini kann einnig að fá nákvæm staðsetningargögn frá annarri Google-þjónustu, eins og Google-kortum, jafnvel þótt slökkt sé á nákvæmri staðsetningu í Google-forritinu
Google notar einnig staðsetningargögnin, þar á meðal nákvæm staðsetningargögn, í þeim tilgangi og á þeim lagalega grundvelli sem lýst er í upplýsingum um persónuvernd Gemini-forrita. Nánar um staðsetningargögn á g.co/privacypolicy/location.
Gemini-forrit gætu deilt nákvæmum staðsetningargögnum með annarri Google-þjónustu, til dæmis Google-kortum, til að verða við beiðni frá þér. Google-þjónustan sem fær staðsetningargögnin þín notar þau í samræmi við persónuverndarstefnu Google.
Gemini kann að fá nákvæma staðsetningu þína frá annarri Google-þjónustu, eins og til dæmis Google-kortum, til að verða við beiðni frá þér, þótt slökkt sé á nákvæmri staðsetningu í Google-forritinu.
Svona eru staðsetningargögn vistuð
- Nákvæm staðsetning sem er unnin með leyfi þínu úr tækinu þínu eða vafra er ekki vistuð í Gemini-forritavirkni.
- Staðsetningargögnum sem Gemini-forrit vinna úr er breytt í almennt svæði áður en þau eru vistuð með Gemini-forritavirkni. Svæðið sem Google áætlar er stærra en þrír ferkílómetrar og innan þess eru í það minnsta 1.000 notendur. Þetta stuðlar að aukinni persónuvernd og ekki er hægt að persónugreina þig út frá svæðinu. Svæðið er þar af leiðandi yfirleitt miklu stærra en þrír ferkílómetrar þegar komið er út fyrir borgir.
Hvernig þú stjórnar og hefur umsjón með gögnunum þínum
Hvenær sem er geturðu:
- Stjórnað staðsetningarheimildum fyrir snjallforritin þín, t.d. Gemini-snjallforritið og Google-kort. Kynnt þér hvernig þú stjórnar staðsetningarstillingum tækis og stjórnar heimildum snjalltækis þegar Gemini er hjálpari tækisins.
- Skoðað og eytt Gemini-forritavirkni. Kynntu þér hvernig þú stjórnar Gemini-forritavirkni þinni.
Mikilvægar upplýsingar
Tilvísanir í staðsetningu kunna að vera vistaðar í spjallinu þínu ef þær eru hluti af skipunum þínum eða svörum, til dæmis ef þú spyrð Gemini-forrit um veitingastaði „í nágrenni við mig“ og svarið vísar í borgina þína. Þú getur stjórnað og eytt Gemini-forritavirkni hvenær sem er.
Athugaðu hvort Gemini-forrit hafa aðgang að og nota nákvæma staðsetningu þína.
Svona skráir þú þig inn:
- Gemini-vefforritið
- Gemini-snjallforritið í Android-tæki
- Gemini-snjallforritið í iPhone eða iPad
- Gemini í úri í WearOS-tæki
- Gemini í Chrome
- Google innbyggt
Gemini kann að fá nákvæm staðsetningargögn frá annarri Google-þjónustu, eins og Android Auto, til að verða við beiðni frá þér, jafnvel þótt slökkt sé á nákvæmri staðsetningu hér að ofan. Kynntu þér hvernig þú slekkur á nákvæmri staðsetningu í Android Auto.
Gemini í Google Messages
Gemini í Google Messages er ekki með aðgang að nákvæmri staðsetningu þinni. Kynntu þér hvar Gemini í Google Messages er í boði.
Gemini-snjallforrit (í Android)
Gemini er hýst af Google-forritinu, jafnvel þótt þú sækir Gemini-forritið . Gemini og Google-forritið geta notað ýmsa eiginleika í tækinu þínu (svo sem myndavél, hljóðnema, tengiliði og staðsetningu) eftir heimildum Google-forritsins. Til að skoða og stjórna þessum heimildum:
- Haltu inni fingrinum á Google-forritinu
.
- Ýttu á Upplýsingar um forrit
Heimildir.
- Til að breyta heimild skaltu ýta á hana og velja síðan Leyfa eða Ekki leyfa.
Upphleðslur
Hvernig vinnur Google með myndirnar sem ég hleð upp?Svona virka myndir í skipunum
Þú getur látið mynd fylgja með skipuninni til að spyrja Gemini spurninga um hana, breyta henni eða nota hana til að búa til annað efni (til dæmis vídeó). Þegar þú bætir mynd við skipunina þína, eða skjámynd með aðgerð á skjá, til dæmis „Spyrja um þennan skjá“, nota Gemini-forrit einnig tækni Google-linsu til að skilja hvað er á myndinni og lesa textann. Google notar þessar upplýsingar eins og aðrar skipanir, eins og útskýrt er í upplýsingum um persónuvernd Gemini-forrita.
Ef þú deilir mynd eða vídeói úr tengdu forriti fyrir margmiðlunarsafn (eins og Google-myndum) með Gemini-forritum verður unnið úr myndinni eða vídeóinu í samræmi við upplýsingar um persónuvernd Gemini-forrita. Það þýðir til dæmis að ef þú notar aðgerðir á skjá eða upphleðslueiginleika Gemini til að deila mynd eða vídeói úr margmiðlunarsafnsforriti með Gemini-forritum og kveikt er á stillingunni Varðveita virkni er myndin eða vídeóið notað til að bæta Google-þjónustur með aðstoð mannlegra yfirlesara. Nánar um stillinguna „Varðveita virkni“.
Tengd forrit í Gemini
Hvað verður um gögnin mín sem Gemini, tengd forrit og aðrar þjónustur skiptast á?Gemini getur notað tengd forrit og aðrar þjónustur til að veita þér sérsniðna aðstoð, finna upplýsingar fyrir þig og hjálpa þér að koma meiru í verk. Ef þú tengist til dæmis Google Workspace eða Google-myndum geturðu notað Gemini til að fletta upp upplýsingum í tölvupóstunum þínum eða myndum. Ef þú biður um tillögur að flugi og hótelum getur Gemini notað opinberar upplýsingar frá Google-flugi og Google-hótelum til að veita þér sérsniðna aðstoð.
Gögn sem er deilt
Meðal gagna sem deilt er milli Gemini og tengdra forrita og annarra Google-þjónusta eru:
- Upplýsingar úr Gemini-spjallinu þínu
- Upplýsingar um tækið þitt og kjörstillingar (t.d. tungumál)
- Upplýsingar um staðsetningu þína
- Upplýsingar og efni úr tengdum forritum (t.d. tölvupóstar, skrár, viðburðir, myndir og vídeó)
Svona eru gögnin þín notuð
Gemini notar gögn úr tengdum forritum í samræmi við upplýsingar um persónuvernd Gemini-forrita, þ.m.t. til að veita þér sérsniðna aðstoð, finna upplýsingar fyrir þig og hjálpa þér að koma meiru í verk. Ef þú uppfyllir tiltekin gjaldgengisskilyrði og velur að sérsníða með tilteknum tengdum forritum notar Google einnig gögn úr þessum tengdu forritum til að sérsníða Gemini-upplifunina þína og gera hluti fyrir þig, til dæmis þegar þú notar Gemini Spark eða Gemini í Chrome.
Gögnin sem Gemini deilir með öðrum Google-þjónustum eru notuð í samræmi við persónuverndarstefnu Google, þar á meðal til að bæta vörur. Þegar þú biður Gemini um að gera hluti fyrir þig deilir Gemini nauðsynlegum gögnum með öðrum fyrir þína hönd til að hjálpa þér að ljúka verkefnum. Forrit þriðju aðila nota gögn frá Gemini í samræmi við eigin persónuverndarstefnur og skilmála.
Svona stjórnar þú tengdum forritum
Þú getur tengt og aftengt forrit í stillingum tengdra forrita. Kynntu þér hvernig þú stjórnar því hvaða forrit Gemini vinnur með.
Sum tengd forrit, eins og Sími, Skilaboð, WhatsApp og Verkfæri, eru tiltæk í Android-snjalltækinu þínu hvort sem þú hefur kveikt eða slökkt á Varðveita virkni. Eins og stendur eru önnur tengd forrit, svo sem Google Workspace, ekki tiltæk ef þú slekkur á Varðveita virkni. Ef þú kveikir aftur á „Varðveita virkni“ fær Gemini aftur aðgang að forritum sem voru tengd áður.
Aftenging forrita og eyðing gagna
- Kynntu þér hvernig þú aftengir forrit í stillingum tengdra forrita.
- Að aftengja forrit eða eyða gögnum í tengdu forriti eyðir ekki upplýsingum úr Gemini-forritavirkni.
- Þú getur stjórnað og eytt Gemini-forritavirkni hvenær sem er.
- Forrit varðveita gögn sem Gemini deilir með þeim í samræmi við eigin reglur. Þegar þú eyðir gögnum í Gemini-forritavirkni eyðast ekki gögn sem önnur forrit hafa fengið frá Gemini. Kynntu þérhvernig Google-þjónustur geyma gögnin sem þær safna.
- Kynntu þér hvernig þú eyðir einhverju úr tengdu forriti sem Gemini man um þig. Ef þú eyðir eða uppfærir gögn í tengdu forriti, t.d. tölvupóst úr Gmail eða mynd úr Google-myndum, er hugsanlegt að breytingin hafi ekki áhrif á upplifun þína í Gemini fyrr en einhverjum dögum síðar.
Atriði sem gott er að vita
- Ef þú biður Gemini-forrit um að breyta efni sem er deilt eða stjórna tengdum tækjum í öðrum þjónustum geta allir sem hafa aðgang að efninu eða tækinu séð þessar aðgerðir.
- Áður en þú tengir sérsniðinn MCP-þjón þriðja aðila til að bæta við sérsniðnu tengdu forriti skaltu ganga úr skugga um að þú treystir þriðja aðilanum og skiljir studdar aðgerðir. Google stjórnar ekki, fylgist ekki með og tryggir ekki öryggi þessara þjóna.
Gjaldgengir notendur með persónulega greind geta tengt sum Google-forrit við Gemini til að fá nýjar og sérsniðnari upplifanir sem áður voru ekki í boði í Gemini í gegnum tengd forrit. Nánar um sérsnið með gögnunum þínum úr tengdum forritum.
Þau gögn sem er safnað og unnið úr
Þegar þú notar tengd forrit í Gemini til að hjálpa þér að hringja eða senda skilaboð safna Gemini-snjallforrit og vinna úr:
- Gemini-forritavirkni (ef hún er tiltæk)
- Skrám yfir símtöl og skilaboð í tæki
- Samskiptaupplýsingum
- Upplýsingum og stillingum tækis
Ef þú notaðir Google-hjálpara áður til að hringja eða senda skilaboð er hugsanlegt að samskiptaferill Google-hjálparans síðustu 90 daga (til dæmis „Sendu skilaboð til Söndru“) verði fluttur úr vef- og forritavirkni yfir í Gemini-forritavirkni. Nánar um hvernig Gemini-forrit fá aðstoð frá Google-þjónustum.
Svona eru gögn notuð
Til að hringja eða senda skilaboð með tengdum forritum nota Gemini-farsímaforrit gögnin þín til að:
- Velja besta forritið til að hringja eða senda skilaboð, og
- Hjálpa þér að komast í samband við réttan aðila.
Google dulkóðar ekki endanna á milli skilaboð sem þú býrð til og sendir með Gemini-forritinu.
Hvernig þú stjórnar og hefur umsjón með gögnunum þínum
- Ef þú vilt ekki að Gemini-snjallforrit noti virknina þína til að hringja eða senda skilaboð geturðu eytt virkninni hvenær sem er í Gemini-forritavirkni.
- Þú getur aftengt studd síma- og skilaboðaforrit hvenær sem er í stillingum tengdra forrita. Kynntu þér hvernig þú stjórnar tengdum forritum í Gemini.
- Þú getur notað studd síma- og skilaboðaforrit í snjalltækinu þínu þótt slökkt sé á Varðveita virkni.
- Ekki er hægt að nota síma- og skilaboðaforrit í snjallúri ef slökkt er á Varðveita virkni.
Mikilvægt: Stillingar Google-hjálpara, t.d. stillingar fyrir Hjálpara á lásskjá, gilda ekki fyrir forrit sem eru tengd við Gemini.
Gemini Spark
Hvernig notar Gemini Spark gögnin mín með fjarvafranum og fjartölvunni?Þegar þú notar betaútgáfu Gemini Spark kann Gemini að nota fjarvafra eða fjartölvu til að hjálpa þér að ljúka verkefnum og keyra kóða. Þessi eiginleiki er aðeins í boði þegar kveikt er á Varðveita virkni. Nánar um Gemini Spark.
Þegar þú notar betaútgáfu Gemini Spark í macOS getur Gemini einnig átt bein samskipti við staðbundnar skrár sem þú velur að bæta við tengdar möppur. Gemini getur til dæmis breytt og flokkað staðbundnar skrár fyrir þig. Nánar um Gemini Spark í macOS.
Hvaða gögn eru tekin til úrvinnslu
Þegar þú notar Spark notar Gemini upplýsingar úr verkefnunum þínum, áætlunum, færni, fjarvafra, fjartölvu og öðrum tiltækum heimildum, s.s. tengdum forritum, persónulegri greind og upplýsingum af vefsvæðum sem það á samskipti við, þ.m.t. þeim sem þú ert skráð(ur) inn á.
- Fjarvafri: Gemini vinnur úr upplýsingum úr vafralotunni þinni, svo sem fótsporum sem innihalda auðkenningarupplýsingar vefsvæðisins, og efni síðunnar.
- Fjartölva: Gemini vistar og keyrir .md-skrár, kóða og aðrar upplýsingar sem tengjast verkefnunum þínum. Vistaðar upplýsingar geta verið gögn sem þú telur viðkvæm úr heimildum á borð við persónulega greind og tengd forrit sem Spark hefur notað til að skilja og vinna úr verkefnum þínum.
Þessi gögn eru notuð í samræmi við upplýsingar um persónuvernd Gemini-forrita, þ.m.t. til að auðvelda þér að nota fjarvafra og fjartölvu í spjalli í framtíðinni. Þú getur eytt þessum gögnum hvenær sem er í stillingum Gemini Spark.
Gögn sem er deilt
Til að ljúka verkefnunum þínum, þar á meðal í gegnum tengd forrit og fjarvafra, mun Gemini deila nauðsynlegum upplýsingum með öðrum þjónustum og þriðju aðilum sem geta falið í sér gögn á borð við nafn og heimilisfang eða upplýsingar sem þú telur viðkvæmar. Þessar upplýsingar kunna að innihalda gögn úr tengdum forritum og fjartölvuskrám.
Hvernig þú stjórnar og hefur umsjón með gögnunum þínum
Fjarvafri: Þú getur stöðvað aðgerðir Gemini Spark í fjarvafranum með því að velja Stöðva í textareit skipunarinnar eða Taka stjórn
í fjarvafranum.
Þú getur einnig eytt fjarvafragögnum í stillingum Gemini Spark. Þetta mun skrá þig út af öllum vefsvæðum í fjarvafranum.
Fjartölva: Þú getur stjórnað kóðakeyrsluferlinum eða hreinsað ferilinn og skrár beint í stillingum Gemini Spark.
- Fjarvafragögnum og fjarstýrðum tölvugögnum verður eytt
- Áætlanirnar og verkefnin þín eru í hléi en verður ekki eytt
- Spjallinu þínu verður ekki eytt og þú getur stjórnað því hvenær sem er í Gemini-forritavirkni
- Gemini Spark á macOS mun ekki lengur hafa aðgang að staðbundnum skrám í tengdum möppum
- Gemini mun sjálfkrafa halda áfram með verkefni og áætlanir sem voru í hléi
Gemini-raunspjall
Hvernig vinnur Google með gögn Gemini Live?Unnið er úr upptökum og textauppskriftum af samskiptum þínum við raunspjall við Gemini, sem og öðru efni sem þú deilir með raunspjalli við Gemini, í samræmi við upplýsingar um persónuvernd Gemini-forrita og þær eru vistaðar í Gemini-forritavirkni ef kveikt er á stillingunni Varðveita virkni. Þú getur stjórnað og eytt Gemini-forritavirkni hvenær sem er.
Ef slökkt er á „Varðveita virkni“ verður raunspjall við Gemini vistað á Google-reikningnum þínum í allt að þrjá sólarhringa svo að Google geti veitt þjónustuna og unnið úr ábendingum. Nánar.
Textauppskriftir af raunspjalli við Gemini
Ef kveikt er á Varðveita virkni eru textauppskriftir af spjalli í rauntíma notaðar til að bæta Google-þjónustur, þar á meðal gervigreindarlíkön. Nánar um stillinguna „Varðveita virkni“.
Hljóð, -vídeó og skjádeilingar í raunspjalli við Gemini
Hljóðupptökur, vídeó og skjádeilingar í raunspjalli við Gemini eru ekki sjálfgefið notaðar til að bæta Google-þjónustur. Nánar um hvernig þú breytir þessu hvenær sem er.
Virtu persónuvernd annarra og biddu um leyfi áður en þú tekur upp eða bætir viðkomandi við spjall í rauntíma.
Gemini í Chrome
Hvað verður um gögnin mín þegar ég nota Gemini í Chrome?Ef þú notar eiginleikann Gemini í Chrome safnar Gemini og vinnur úr efni af síðum og vefslóðum núverandi flipa og annarra flipa sem þú hefur deilt. Ef þú notar Gemini í Chrome til að finna síður sem þú hefur opnað í Chrome mun Gemini einnig safna viðeigandi vefslóðum úr ferlinum þínum. Ekki er víst að þú sjáir allt efni síðunnar sem Gemini notar.
Svona eru gögn vistuð
Upplýsingar af vefsvæðum sem þú heimsækir með Gemini í Chrome og hljóð og skrár sem þú deilir með því eru geymdar í Gemini-forritavirkni ef kveikt er á stillingunni Varðveita virkni. Efni síðu verður skráð tímabundið á Google-reikninginn þinn og birtist ekki í Gemini-forritavirkninni þinni.
Hvernig þú stjórnar og hefur umsjón með gögnunum þínum
Þú getur valið að hætta að deila núverandi flipa og öðrum opnum flipum sem þú hefur deilt með Gemini. Nánar.
Sjálfvirkni skjás í Android-forritum
Hvað verður um gögnin mín þegar Gemini notar skjásjálfvirkni til að hjálpa mér að ljúka verkefnum í Android-forritum?Gemini getur aðstoðað við verkefni, eins og að panta eða bóka ferðir, með því að nota skjásjálfvirkni í tilteknum forritum í tækinu þínu.
Þú ert við stjórnvölinn
Gemini getur gert mistök. Þú berð ábyrgð á því sem Gemini gerir fyrir þína hönd svo þú skalt hafa náið eftirlit með því. Þú getur stöðvað, skoðað framvindu og tekið handvirkt yfir stjórnina.
Hafðu í huga
Við sjálfvirkni tekur Gemini skjámyndir sem geta innihaldið hvaða upplýsingar sem er sem birtast í forritinu. Þjálfaðir yfirlesarar fara yfir skjámyndir og nota þær til að bæta Google-þjónustur ef kveikt er á Varðveita virkni. Ekki slá inn innskráningar- eða greiðsluupplýsingar í Gemini-spjall.
Forðastu að nota sjálfvirkni skjás í neyðartilvikum eða verkefnum sem innihalda viðkvæmar upplýsingar. Þú getur samt sem áður notað Gemini með tengdum forritum þótt slökkt sé á sjálfvirkni skjás. Nánar um tengd forrit.
Nánar um hvernig þú getur notað Gemini til að ljúka verkefnum með skjásjálfvirkni.
Shopping
Hvað verður um gögnin mín þegar ég bæti vörum í Google-innkaupakörfuna úr Gemini?Þegar þú bætir vörum í Google-innkaupakörfuna þína úr Gemini eru körfu- og pöntunargögn vistuð í Google-veski. Þessi gögn eru notuð í samræmi við skilmála og persónuverndarstefnu Google og stillingar Veskis, þ.m.t. fyrir sérsnið og auglýsingar (háð stillingunum þínum).
Hvernig þú stjórnar og hefur umsjón með gögnunum þínum
Þú getur nálgast Google-innkaupakörfuna þína í Gemini hvenær sem er í gegnum stillinguna „Karfa og pantanir“.
Kynntu þér hvernig þú stjórnar gögnum og persónuvernd í Google-veski.
Þegar þú notar Google Pay til að kaupa í Gemini er færsluferillinn vistaður í Google Pay-virkninni þinni. Þessi gögn eru notuð í samræmi við upplýsingar um persónuvernd í Google Payments og stillingar þínar í Google Pay og Google-veski, þ.m.t. fyrir sérsnið og auglýsingar (fer eftir stillingum).
Hvernig þú stjórnar og hefur umsjón með gögnunum þínum
Þú getur skoðað færsluferilinn þinn hvenær sem er á vefsvæði Google-veskis.
Gems frá Google Labs
Hvað verður um gögnin mín þegar ég á samskipti við Gems frá Google Labs?Nú geturðu nálgast og fundið Gems frá Google Labs í Gemini-forritum eða á opal.google.
Gems frá Google Labs eru sérsniðin verkflæði sem eru búin til í gervigreindarsmáforritum sem þú getur búið til, breytt og deilt. Þegar þú átt samskipti við Gems frá Google Labs ertu að nota Opal, tilraun Google Labs.
Mikilvægt: Opal, tilraun Google Labs, er ekki hluti af Gemini-forritum. Það þýðir að gögn úr þessari upplifun birtast ekki í Gemini-forritavirkni og er ekki stjórnað af stillingu Gemini fyrir tengd forrit í Workspace. Upplýsingar um persónuvernd Gemini-forrita gilda ekki og Opal-gögnin þín, þ.m.t. ábendingar sem þú sendir, eru unnin í samræmi við persónuverndarstefnu Google.
Svona eru gögn vistuð
Gems úr Google Labs sem þú býrð til, samskipti þín við þá og margmiðlunarefni (hljóð, myndir, skjöl) sem þú hleður upp eru geymd í möppunni „Ópal“ á Google Drive.
Hvernig þú stjórnar og hefur umsjón með gögnunum þínum, þ.m.t. eyðir Gems úr Google Labs
Þú getur eytt Gems úr Google Labs í Gems-stjórnun Gemini-vefforritsins eða í möppunni „Opal“ í Google Drive. Samskiptaferli sem tengist Gem úr Google Labs verður einnig eytt.
Innflutt gögn frá öðrum gervigreindarverkvöngum
Hvað verður um gögnin mín þegar ég flyt inn minni eða spjall af öðrum gervigreindarverkvöngum?Gögn (minni og spjall) sem þú flytur inn af öðrum gervigreindarverkvöngum eru vistuð í virkninni þinni. Þessi gögn eru notuð í samræmi við Gemini-forritavirknina hjá þér, þ.m.t. til að bæta þjónustur okkar (til dæmis þjálfa skapandi gervigreindarlíkön) og vernda Google, notendur okkar og almenning. Þú getur stjórnað eða eytt virkninni þinni hvenær sem er. Kynntu þér hvernig þú stjórnar og eyðir Gemini-forritavirkni.
Þú getur líka valið að eyða stöku innfluttu spjalli hvenær sem er eða eytt á einu bretti öllu innfluttu spjalli sem tengist .zip skránni sem var notuð til að flytja það inn í Gemini-forrit.
Glósubækur
Hvað verður um gögnin mín þegar ég nota glósubækur í Gemini?Spjall við glósubækurnar þínar í Gemini er vistað í samræmi við stillingu Varðveita virkni og notað eins og lýst er í upplýsingum um persónuvernd Gemini-forrita, þ.m.t. til að bæta Gemini með hjálp mannlegra yfirlesara. Skrárnar sem þú bætir við glósubókina þína sem heimild í Gemini eru ekki notaðar beint til að þjálfa skapandi gervigreindarlíkön okkar.
Notandamyndir
Hvað verður um gögnin mín þegar ég bý til notandamynd í Gemini-forritum?Til að búa til notandamynd þarftu að taka upp röddina þína og andlitið. Google notar þessi gögn til að búa til gervigreindarefni með notandamyndinni þinni í tilteknum Google-þjónustum, þar á meðal Gemini-forritum, og til að vernda Google, notendur okkar og almenning.
Svona eru gögn vistuð
Upptökurnar þínar eru vistaðar á öruggan hátt á Google-reikningnum þínum. Ef þú opnar ekki eða notar upptökurnar þínar í þrjú ár eyðir Google þeim sjálfkrafa.
Hvernig þú stjórnar og hefur umsjón með gögnunum þínum
Þú stjórnar upptökunum þínum og getur eytt þeim hvenær sem er í flipanum Gögn og persónuvernd á Google-reikningnum þínum. Þú finnur einnig eyðingarvalkostinn í stillingum Gemini.
Hvernig gögnin þín eru notuð
Við notum ekki upptökurnar þínar til að þjálfa skapandi gervigreindarlíkön sem knýja þjónustur okkar, nema til að bregðast við misnotkun eða skaða.
Mikilvægt: Þessi stilling er aðskilin frá stillingunni sem YouTube býður upp á fyrir geymdar notandamyndir á YouTube-rásinni þinni (ef þú ert með slíka). Eyðing annars hefur ekki áhrif á hitt.
Canvas
Hvað verður um gögnin mín þegar ég á samskipti við vefforrit Canvas?Þegar þú átt samskipti við Canvas-forrit sem notendur hafa búið til getur hver sem er með opinberan tengil séð gögn sem þú deilir.
Svona eru gögn vistuð
Google býður upp á möguleika á að vista notendagögn fyrir Canvas-forrit í Firebase. Höfundar forrita geta valið þennan valkost eða vistað samskiptagögn frá þér á öðrum stöðum (eða valið að vista ekki slík gögn).
Hvernig þú stjórnar og hefur umsjón með gögnunum þínum
Sýndu varkárni og notaðu eingöngu forrit sem þú treystir. Ef þú deilir gögnum með Canvas-forriti geturðu ekki lengur eytt þeim en höfundur forritsins getur það.
Gemini í macOS
Hvað gerist þegar ég nota „Talað við glugga“ í Gemini fyrir macOS?Þjónustuskilmálar
Hvaða skilmálar gilda um notkun á Gemini-forritum?Þjónustuskilmálar Google og reglur um bannaða notkun skapandi gervigreindar gilda um Gemini-forrit.
Ef þú ert neytandi í Kóreu samþykkirðu einnig að notkun þín á Gemini-forritum sé háð kóreskum þjónustuskilmálum fyrir staðsetningu.